Norðurþing

Norðurþing

Norðurþing. Hvað er það?

Nýjustu fréttir

  • Opnunarhátíð Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ á Akureyri

    föstudagur 5.feb.10 15:43
    Stefán Jón Sigurgeirsson

    Það verður stór stund klukkan 16 á morgun, 6. febrúar, í Skautahöllinni á Akureyri þegar fram fer opnunarhátíð Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ sem nú er haldin í fimmta skipti og stendur yfir frá 6. febrúar - 21. mars.

    Á opnunarhátíðinni verða m.a. fulltrúar Íslands á Vetrarólympíuleikunum sem fram fara nú í febrúar í Vancuver.  Í þeim hópi er einmitt okkar maður, Stefán Jón Sigurgeirsson frá Húsavík. 

    Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og sýna okkar manni stuðning fyrir komandi átök á Ólympíuleikunum.


  • Kynning á tillögu að aðalskipulagi

    fimmtudagur 4.feb.10 15:41

    Mánudagskvöldið 8. febrúar nk. verður tillaga að Aðalskipulagi Norðurþings 2009-2029 kynnt á opnum fundi á Húsavík. Farið verður yfir tillögu að stefnu á helstu sviðum sveitarfélagsins að því er tekur til skipulagsmála í dreifbýli og þéttbýli.


  • Konur í pólitík - kynningarfundur

    þriðjudagur 2.feb.10 15:55
    Frá kynningarfundinum

    Fimmtudagskvöldið, 28. janúar var haldið kynningarkvöld fyrir konur um pólitík í sal stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík. 

    Kynningarkvöldið var haldið á vegum kvenna í pólitík. 


  • Gönguskíðabraut á Reykjaheiði

    þriðjudagur 2.feb.10 15:09

    Gönguskíðabrautin á Reykjaheiði er opin í dag. Búið er að troða tvo hringi, sá styttri er einn km að lengd en sá lengri er fimm km langur. 

    Skilyrði til skíðagöngu er ákjósanleg á heiðinni en þar er logn og 7 gráðu frost.

  • Skíðagöngunámskeiði seinkað til kl. 15:00

    föstudagur 29.jan.10 13:33

    Áður auglýstu skíðagöngunámskeiði fyrir börn og fullorðna, n.k. laugardag 30. janúar, er frestað til kl. 15:00 vegna landsleiks í handknattleik.

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning