Norðurþing

Norðurþing

Norðurþing. Hvað er það?

Stjórnsýsluhús

 

Um Stjórnsýsluhúsið

Í Stjórnsýsluhúsinu eru sveitarstjórnarskrifstofur og skrifstofur félags- og skólaþjónustu. Helstu sviðsstjórar í húsinu eru:

Fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra  Guðbjartur Ellert Jónsson
Menningar- og fræðslufulltrúi  Huld Aðalbjarnardóttir
Skipulags- og byggingarfulltrúi  Gaukur Hjartarson
Framkvæmda- og þjónustufulltrúi  Tryggvi Jóhannsson
Félagsmálastjóri  Freydís Freysteinsdóttir

Sveitarstjóri Norðurþings er Bergur Elías Ágústsson

Eldri hluti Stjórnsýsluhússins var byggður fyrir liðlega fjórum áratugum síðan og var upphaflega ætlaður fyrir Áhaldahús bæjarins, sem reyndar flutti aldrei inn í húsið.
Bæjarfélagið keypti síðan húsnæði trésmiðjunnar Borgar að Ketilsbraut 7 og í árslok 1999 var það húsnæði tekið í notkun eftir mikla endurbyggingu, og opnað á milli húsanna númer 7 og 9, sem eru sambyggð.

Starfsmenn í Stjórnsýsluhúsi eru um 30.

Í Stjórnsýsluhúsinu fer fram megin hluti allrar skrifstofustarfsemi sveitarfélagsins, á efri hæðinni er félags- og skólaþjónustan til húsa, en á þeirri neðri eru skrifstofur stjórnsýslusviðs og fl.. Hlutverk starfseminnar í Stjórnsýsluhúsinu er fyrst og fremst að veita íbúum og stofnunum sveitarfélagsins þjónustu ásamt því að vera tengiliður  við fyrirtæki og stofnanir innan og utan sveitarfélagsins.

Helstu verkefni eru: Bókhald, starfsmannahald, launagreiðslur, tölvuvinnsla, fjármálastjórn, áætlanagerð, innheimta á tekjum bæjarins, álagning gjalda og almenn afgreiðsla og símaþjónusta. Þar er ennfremur skjalasafn sveitarfélagsins og almenn upplýsingaþjónusta, m.a. vegna afgreiðslumála sveitarstjórnar og nefnda.

Upplýsingar
Stjórnsýsluhús Húsavíkurbæjar
Heimilisfang: Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík
Sími: 464-6100
Fax: 464-6101
Netfang: nordurthing@nordurthing.is
Veffang: www.nordurthing.is

Afgreiðsla er opin virka daga: kl: 9-12:15 og 12:45-16.


Nýjustu fréttir

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning