Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Byggðarráð Norðurþings

Fundargerðir Byggðarráðs - föstudagur 2.júl.10 09:45 - Lestrar 546
 

125. fundur

byggðarráðs Norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

föstudaginn 2. júlí 2010 og hófst hann kl. 08:00

 

Fundinn sátu:

Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Friðrik Sigurðsson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,

 

Fundargerð ritaði:  Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill sveitarstjóra

 

Dagskrá:

 

1.

201006008F - Æskulýðsnefnd Norðurþings - 22

Fundargerð 22. fundar æskulýðsnefndar afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera með sér.

 

Fundargerðin staðfest með umræðu um liði 3 og 5.

Aðrir liðir staðfestir án umræðu.

 

1.1.

201006082 - Starfsemi Æskulýðsnefndar.

1.2.

201006078 - Sundlaug Húsavíkur 50 ára

 

 

1.3.

201006080 - Sparkvellir á Kópaskeri og á Raufarhöfn!

Til máls tóku:  Hilmar Dúi, Gunnlaugur

 

1.4.

201006079 - Íþróttamannvirkjagerð á Húsavík

1.5.

201006081 - Leikvellir í sveitarfélaginu Norðurþingi.

Til máls tóku:  Hilmar Dúi, Gunnlaugur og Þráinn.

 

 

2.

201006007F - Menningar- og fræðslunefnd Norðurþings - 34

Fundargerð 34. fundi menningar- og fræðslunefndar staðfest og afgreidd eins og einstök erindi bera með sér.

 

Fundargerðin staðfest með umræðu um liði 2 og 4

Aðrir liðir staðfestir án umræðu.

2.1.

201006072 - Mál til kynningar - verkefni menningar- og fræðslunefndar.

2.2.

201002048 - Dagvistun leikskólabarna á Húsavík - horfur vor 2010

Til máls tóku:  Hilmar, Gunnlaugur, Þráinn og Bergur.

 

2.3.

201005031 - Skólaþjónusta - ósk um aukna fjárveitingu til þróunarverkefnis um byrjendalæsi

2.4.

200905143 - Heimgreiðslur til foreldra leikskólabarna í Öxarfjarðarskóla v. lokunar leikskólans.

Til máls tóku:  Gunnlaugur, Hilmar og Jón Helgi.

 

2.5.

201006051 - Félag leikskólakennara,varðandi ráðningu í stöður stjórnenda og kennara

2.6.

201006037 - Þekkingarnet Þingeyinga, námsver og námsþjónusta í fjölnota samfélagshúsi á Kópaskeri

2.7.

201006077 - Önnur mál - 34. fundur menningar- og fræðslunenfd

 

3.

201006004F - Framkvæmda- og þjónustunefnd Norðurþings - 29

Fundargerð 29. fundar framkvæmda- og þjónustunefndar afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera með sér.

 

Fundargerðin staðfest með umræðu um liði: 5 og 7

Aðrir liðir staðfestir án umræðu.

3.1.

200905128 - Dreifbýlisfulltrúi-Kynning verkefna

3.2.

200907050 - Garðyrkjustjóri-Kynning verkefna

3.3.

201006064 - Bæjarverkstjóri - kynning verkefna

3.4.

200905129 - Umsjónarmaður fasteigna-Kynning verkefna

3.5.

201006059 - Hestamannafélagið Grani, ósk um leyfi til að taka fyllingarefni fyrir nýja reiðskemmur úr námum í Saltvík án endurgjalds

Til máls tóku:  Þráinn og Jón Helgi

 

3.6.

201006030 - Tillaga frá fulltrúa Þinglistans um kaup á hraðamælitækjum með blikkljósum við aðkeyrsluna að Húsavík að sunnan og norðan

3.7.

201006033 - Tillaga frá fulltrúa Þinglistans um endurskoðun á sorphreinsunarmálum á Húsavík yfir sumartímann

Til máls tóku:  Hilmar, Þráinn og Gunnlaugur.

 

3.8.

201001072 - Uppsögn á samningi um viðhald götulýsingar

 

4.

201006094 - Hitaveita Öxarfjarðarhéraðs

Þórarinn Þórarinsson, stjórnarformaður Hitaveitu Öxarfjarðar, mætti á fund byggðarráðs til að fara yfir samkomulag um greiðslur Iðnaðarráðuneytisins til Norðurþings vegna hitaveitunnar.  Þórarinn rakti sögu málsins og gat þess að viðræður við ráðuneytið um styrkveitinguna hafa staðið yfir í 811 daga. Krafa ráðuneytisins er að sveitarfélagið Norðurþing eignist meirhluta í Hitaveitu Öxarfjarðar.

Byggðarráð felur sveitarstjóra Norðurþings að vinna að málinu með stjórnarformanni hitaveitunnar, í kjölfarið verði svo boðað til hluthafafundar í hitaveitunni.

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemdir við ofangreinda afgreiðslu.

 

5.

201006095 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, varðandi úthlutun aukaframlags 2010

Lagt fram til kynningar.

 

6.

201005013 - Umræða um lögreglu- og sýslumannsembættið á Húsavík

Með vísan til fundar með dómsmálaráðherra sem fram fór á Húsavík þann 7. júní s.l. þar sem farið var yfir fyrirhugaðar breytingar á skipan lögreglu og sýslumannsembættum á landinu, kom fram að flytja ætti yfirstjórn lögregluembætta til Akureyrar.  Á fundinum kom einnig fram að ekki liggur fyrir endanleg staðsetning á sýslumannsembættinu fyrir Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur.  Byggðarráð leggur ríka áherslu á að yfirstjórn sýslumannsembættisins verði staðsett á Húsavík og lýsir sig reiðubúið til samstarfs við ráðuneytið um slíkt fyrirkomulag.

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

7.

200801042 - Aðalskipulag Norðurþings

Byggðarráð óskar eftir að texta í aðalskipulagi Norðurþings 2010 - 2030 verði breytt í samræmi vð breyttar forsendur.  Eftirfarandi liðir eru:

 

Skuld (2.08) - að breyting verði gerð á orðalagi er viðkemur Garðarshólma ( sjá númer 3.08) á annari hæð Verðbúðarinnar.

Skúrar smábátasjómanna ( 3.04) - að breyting verði gerð á orðlagi í samræmi við breyttar forsendur um skúrana og lóð sem þeir standa á.  Felld verði út setning sem felur í sér  varðveisluákvæði.

Garðarshólmur (3.08) - að breyting verði gerð á texta er varðar nýtingu á efri hæð Verðbúðarinnar til samræmis við breyttar forsendur.

Byggðarráð vísar ofangreindum athugasemdum til skipulags- og bygginganefndar.

Áheynafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

 

8.

200710185 - Lögreglusamþykkt fyrir Norðurþing

Byggðarráð samþykkir  fyrirliggjandi lögreglusamþykkt og felur sveitarstjóra að koma henni í auglýsingu í B hluta Stjórnartíðinda.  Byggðarráð leggur einnig til að lögreglusamþykktin verði tekin til endurskoðunar um leið og samþykktir sveitarfélagsins á haustdögum.  Hlutaðeigandi aðilum verði þá gefinn kostur á umsögn.

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

9.

201001009 - Tún - söluheimild

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag um aflausn og uppgreiðslu á eignarhlut ríkisins í Miðgarði 4 ( Tún).  Með þessu eignast sveitarfélgið alla húseignina.

 

 

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

10.

201006092 - Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

 

11.

201006035 - Norðurþing, skipan fulltrúa í nefndir og ráð 2010-2014

Byggðarráð skipar Soffíu Helgadóttur sem aðalmann í svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðar í stað Katrínar Eymundsdóttir.  Varamaður í svæðisráðið verður Jón Helgi Björnsson.

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

12.

201006083 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni v/Hrísateigur 2.

Byggðarráð frestar erindinu þar til eftir umfjöllun skipulags- og bygginganefndar.

 

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

13.

201006073 - Iðnaðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða (heildarlög), 660. mál.

Byggðarráð vísar erindinu til umfjöllunar hjá skipulags- og bygginganefnd.

 

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

14.

201006070 - Vegargerðin, framkvæmdir við vegleiðina Dettifoss - Vesturdalur

Byggðarráð ítrekar nauðsyn þess að gott samráð sé haft við hlutaðeigandi aðila og að framkvæmdum sé hraðað eins og kostur er.

 

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

15.

201003040 - Hvalasafnið SES - Framkvæmdir á húsnæði/leigusamningur

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi leigusamning.

 

Eftirfarandi er bókanir eru lagðar fram:  

 

Við áheyrnafulltrúar í byggðarráði fögnum því að aukið fjármagn sé til staðar til stuðnings við ferðaþjónustuna í sveitarfélaginu.  Framlag upp á 150.000.- per mánuð er tvöföldun á framlagi til Hvalasafnisins frá því sem nú er og samningur til 7 ára ætti að tryggja rekstur safnsins til næstu ára. 

Friðrik og  Hilmar.

 

Byggðarráð lýsir furðu á þessari bókun áheyrnafulltrúa enda er þessi samningur til framkvæmda við Upplýsingamiðstöð og fjölgun almennings salerna í bænum.  Þessi upphæð er ekki aukning á rekstrarframlagi til Hvalasafnsins.

Jón Helgi, Gunnlaugur og Þráinn.

 

16.

200911069 - Félagsmálaráðuneyti-Tilfærsla þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga

Fyrir liggur staðfesting aðildarsveitarfélaga um rekstur á þjónustu við fatlaða og tilfærslu á henni frá ríki til sveitarfélaga.  Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda inn umsókn til félagsmálaráðuneytisins þar sem óskað er eftir undanþáguákvæði vegna íbúafjölda.  Gert er ráð fyrir að Norðurþing verði leiðandi sveitarfélag og sinni þessari þjónustu í Þingeyjarsýslum.

 

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

17.

201007001 - Jóna Birna Óskarsdóttir f.h. sex listamanna óskar eftir sýningaraðstöðu í verbúð um mærudaga

Byggðarráð samþykkir erindið.

 

Áheyrnafulltrúarnir Friðrik og Hilmar gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

18.

201006071 - Gautur Þorsteinsson f.h. Og fjarskipta ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjarskiptastöð á Smjörhólsfelli

Byggðarráð samþykkir að leggja til verkefnisins 1.000.000.- króna. 

 

Friðrik tók ekki afstöðu til málsins vegna tengsla við samkeppnisaðila.

 

Áheyrnafulltrúinn Hilmar Dúi gerir ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

19.

201007002 - Arnhildur Pálmadóttir, ósk um aðstöðu í verbúð fyrir vinnustofur

Byggðarráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu.  Byggðarráð felur sveitarstjóra að ræða við bréfritara um afnot af Túni.

 

Undirritaður telur auðveldlega sé hægt að verða við ósk Arnhildar og harmar því afstöðu byggðarráðs til málsins.

Friðrik - sign

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:25

 

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning